ForsíðaVörur Sölustaðir Myndir Um okkur Reynslusögur Gestabók

stormynd 

Til forna bjuggu á Vestfjörðum margar helstu nornir, seiðkarlar og grasalæknar Íslands– og þeirra  viska hefur borist frá kynslóð
til kynslóðar.   Áhugi Aðalbjargar Þorsteinsdóttur á jurtum og áhrifamætti þeirra.  Nálægðin við stórbrotna náttúru Vestfjarða,
hafði áhrif á það að frá blautu barnsbeini hefur Aðalbjörg trúað á töframátt jurtanna. 

Þróun og framleiðsla á smyrslum, salva og áburði úr plöntum sem eru tíndar við Tálknafjörð, Patreksfjörð og Arnarfjörð hefur
staðið frá 1990.  Einungis eru valdar villtar jurtir sem vaxa í næringarríkum jarðvegi, fá hreint loft og tært vatn, þannig að bestu
eiginleikar og einstök virkni jurtanna nýtist til fullnustu. 

Uppskriftirnar eru þróaðar af Aðalbjörgu.  Þær eru sóttar í vísdóm og verkkunnáttu, hefðir og sögusagnir sem gengið hafa mann
fram af manni á Íslandi í hundruð ára. 

Smyrslin frá Villimey eru 100% náttúruleg, unnin úr íslenskum jurtum sem eru handtýndar í hreinni náttúru Vestfjarða þegar virkni
þeirra er hvað mest.  Þau eru án allra rotvarna-, ilm- og litarefna og eru lífrænt vottuð frá Vottunarstofunni Tún.

 

VILLIMEY ehf • Miðtúni 3 • IS-460 Tálknafirði • villimey@villimey.is • Sími/Tel.:+354 892 8273 • Fax:+354 456 2709
TV - Vefhönnun 2006