ForsíðaVörur Sölustaðir Myndir Um okkur Reynslusögur Gestabók

barn_mthtext_reynslusogur

Hæ hæ, vestfirska galdrakona !
 
Ég og maðurinn minn höfum undanfarið notað nokkuð reglulega, bæði kvölds og morgna.
Vöðva-og liða-galdur, frá Villimey, og reynst okkur afar vel.
Hann hefur tvívegis farið í brjósklos-aðgerð, er samt enn oft með mikla bakverki,og hefur þurft að nota verkjalyf.
Nú er öldin önnur Vöðva-og liða-galdurinn hefur svo sannarlega slegið í gegn,verkirnir farnir og engin verkjalyf. Allt annað líf allveg ótrúlegt en satt. Svo er allveg svakalega gott að nota þetta núna í svona miklum frostum og kulda eins og verið hefur undanfarið, sérstaklega fyrir menn sem eru útivinnandi.
Og ég, Aðalbjörg mín,er allt önnur eftir að byrja að nota Vöðva-0g liða-galdur reglulega á bak vegna verkja og á hné vegna slits og verkja, allt miklu betra, það má helst ekki gleyma að bera á sig og ef það gleymist í 1-2 skipti finnur maður afturför eða ég allavega í bili.
En hvort sem við bara trúum svona á þetta eða eru bara galdrar, læt ég aðra um að dæma. Okkur líður allavega betur!!!!!!!!
 
Takk kærlega fyrir mig og kremin :)
Bestu-kveðjur vestur, Sigga klinka.
___________________________________________________________________________________________________________________________________

Hæ hæ ég vildi bara segja þér frá minni reynslu af bumbu galdrinum sem er alveg mögnuð. Ég bar bumbu galdurinn á kúluna þegar ég gekk með strákinn og það virkaði rosa vel en ég klikkaði á að bera á mjaðmirnar og slitnaði svolítið á mjöðmunum en svo ákvað ég að prófa að bera bumbu galdurinn á slitin eftir æfingu og nú eru þau nánast horfin sem er alveg meiriháttar. Vildi bara segja þér hvað þetta virkar vel á slitin, reyndar virka allar vörurnar sem ég hef prófað frá þér mjög vel. Ég segi bara Takk.

kv Nancy


Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir.
Ég fór að nota vöðva og liðagaldur eftir að ég lenti í bílslysi og  slasaðist á hálsi (brákaði tvo hálsliði).   Eftir slysið sest að mikil þreyta í vöðvum við háls og axlir.  Áður þurfti ég að taka verkjalyf til þess hreinlega að geta sofið, en í dag ber ég á mig Villimeyjar vöðva og liðagaldur, þá hverfa verkir og ég upplifi góða slökun í vöðvum.


Marion Worthman
Ég hef notað Bossa-galdur fyrir dóttir mína sem hefur auma húð á bleyjusvæði.  Þegar hún er með þurra og sprungna húð á kinnum hef ég einnig notað smyrslið. Ég er mjög ánægður notandi.
_
____________________________________________________________________________________________________________________________

Ég er mjög slæm af slitgigt, sérstaklega í þumalfingrum.  Það er búið að gera aðgerð á vinstri þumalfingri og fjarlægja liði.  Það stóð til að gera sömu aðgerð á hægri þumli. Þumallinn var mjög illa farinn, mjög bólginn, aumur og miklir verkir fylgdu þessu.  Ég þurfti að nota spelkur svo til daglega.  Þá eignaðist ég krukku með þessu undrakremi sem ég hef notað núna samfleytt í þrjá mánuði.  Það er öll bólga farin úr þumlinum, svo til allir verkir og ég hef ekki notað spelkur í tvo mánuði.  Hjartans þakkir fyrir mig.
Þorbjörg S. Þórarinsdóttir.
VILLIMEY ehf • Miðtúni 3 • IS-460 Tálknafirði • villimey@villimey.is • Sími/Tel.:+354 892 8273 • Fax:+354 456 2709
TV - Vefhönnun 2006