ForsíðaVörur Sölustaðir Myndir Um okkur Reynslusögur Gestabók

Aðalbjörg er ein af þeim
sem orku kann að brúka
hún trítlar inní töfraheim
til að lækna sjúka

Snemma vaknaði áhugi Aðalbjargar Þorsteinsdóttur á jurtum og áhrifamætti þeirra. Nálægðin við stórbrotna náttúru Vestfjarða, hafði áhrif á það að frá blautu barnsbeini hefur Aðalbjörg trúað á töframátt jurtanna.
Hún hefur frá árinu 1990 starfað við það að þróa og framleiða smyrsl, salva og áburði úr plöntum sem hún tínir á heimaslóðum sínum við Tálknafjörð og einnig á stórum svæðum við Patreksfjörð og Arnarfjörð.
Aðalbjörg gætir þess í hvívetna að velja einungis villtar jurtir sem vaxa í næringarríkum jarðvegi, fá hreint loft og tært vatn, þannig að bestu eiginleikar og einstök virkni jurtanna nýtist til fullnustu. Uppskriftir þær sem Aðalbjörg hefur þróað eru að stórum hluta sóttar í vísdóm og verkkunnáttu, hefðir og sögusagnir sem gengið hafa mann fram af manni á Íslandi í hundruð ára.

 

Fréttir og fréttatilkynningar

 

VILLIMEY ehf • Miðtúni 3 • IS-460 Tálknafirði • villimey@villimey.is • Sími/Tel.:+354 892 8273 • Fax:+354 456 2709
TV - Vefhönnun 2006